Þann 14. janúar næstkomandi ætlum við að perla saman á Kexinu og óskum eftir ykkar aðstoð. Leggjumst saman á eitt við að perla armbönd sem verða síðan seld til styrktar félaginu samhliða átakinu okkar sem er í janúar.
Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru litrík og falleg og auðveld í samsetningu svo allir geta tekið þátt. Þau eru öll perluð í sjálfboðavinnu og því óskum við eftir kröftugum sjálfboðaliðum til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur.
Sjálboðaliðar geta komið á milli kl. 12 og 17 í Gym og Tonik salinn á Kex Hostel og perlað með okkur.
Það mun vera heitt á könnunni og hlökkum við til að sjá sem flestar perlur.
KOMIÐ OG PERLIÐ MEÐ KRAFTI ♥