Kraftur ætlar að perla með Akureyri og nágreinni laugardaginn 4.nóvember milli kl. 13 – 17. Staðsetning á Akureyri er óstaðfest
Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.
Við óskum eftir kröftugum sjálfboðaliðum til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armbönd eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband ♥ En allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbmein og aðstandendur.
Sjálfboðaliðar geta komið á milli kl. 13 og 17 laugardaginn 4.nóvember og perlað af krafti.
Það mun vera heitt á könnunni og tökum vel á móti ykkur 🙂
KOMIÐ OG PERLIÐ MEÐ KRAFTI ♥