Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað með Krafti á Hvolsvelli

25. nóvember 2017 @ 13:00 - 17:00

Kraftur ætlar að perla með Hvolsvelli og nágrenni laugardaginn 25.nóvember milli kl. 13 – 17 í Midgard Adventure á Hvolsvelli.

Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.
Við óskum eftir kröftugum sjálfboðaliðum til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur.
Öll armbönd eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband ♥ En allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbmein og aðstandendur.

Sjálfboðaliðar geta komið á milli kl. 13 og 17 laugardaginn 25.nóvember og perlað af krafti.

Það mun vera heitt á könnunni og tökum vel á móti ykkur 🙂

KOMIÐ OG PERLIÐ MEÐ KRAFTI ♥ #lífiðernúna #kraftur

Upplýsingar

Viðburðahaldari

Staðsetning