Í þessum tíma náum við djúpri slökun inn í taugakerfið okkar með gong hugleiðslu og léttri cranio snertingu fyrir þá sem vilja. Það er hægt að velja um að láta fara vel um sig á gólfinu og styðja við líkamann með púðum og teppum eða fljóta um í silki sem líkist því að fljóta um í vatni.
Öllum félagsmönnum Krafts býðst að skrá sig, eingöngu er hægt að skrá sig í einn tíma í einu. Takmörkuð pláss eru í boði hverju sinni. Ef þú hefur skráð þig en forfallast, vinsamlegast láttu okkur vita með því að senda tölvupóst á kraftur@kraftur.org eða í gegnum síma 866-9600