Kraftur leggur leið sína norður á Akureyri á skíði helgina 15. til 17. mars. Kraftur mun bjóða félagsmönnum að koma með en fyrstur kemur fyrstur fær reglan gildir, þar sem takmarkað pláss er í boði og því borgar sig að skrá sig strax.
Því miður er uppselt í rútuna og gistinguna fyrir Norðan en ef þú ert fyrir Norðan eða langar að koma á eigin vegum að hitta okkur þá væri náttúrulega frábært að sjá þig.
Hlökkum til að sjá ykkur öll.