- Þessi viðburður er liðinn.
StelpuKraftur – stuðningshópur

StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 – 45 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist annan hvern mánudag kl. 20 ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8, eða annarsstaðar.
Dagskrá – mars
Fim. 11. mars– Systrastund
- Systrastund með súkkulaði og slökun hjá Láru í Andafit í Reykjavík Yoga Frakkastíg – nánar auglýst síðar á FB-hóp StelpuKrafts
Mán. 22.mars– hittingur
- Hittingur í persónu – nánar auglýst síðar. -Sjá FB-hóp StelpuKrafts
Umsjón með hópnum hefur Hulda Hjálmarsdóttir, starfsmaður og félagsmaður hjá Krafti.
Frekari upplýsingar og hægt að óska eftir inngöngu í FB – hóp StelpuKrafts.
Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.