- Þessi viðburður er liðinn.
StrákaKraftur

Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.
StrákaKraftur er stuðningshópur fyrir unga menn á aldrinum 18 – 45 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist annan hvern þriðjudag kl. 20 í húsakynnum Krafts eða á öðrum fyrirfram ákveðnum snilldar stöðum.
Þrír hittingar í apríl
- 1.apríl (mánudagur)– Hittumst á Poolstofunni kl. 20 og tökum nokkra leiki. Þú mátt melda þig á viðburðinn hér.
- 16. apríl (þriðjudagur) – Skotfimi – auglýst betur inn á Facebooksíðu StrákaKrafts
- 29.apríl (mánudagur) – Auglýst síðar
Umsjónarmenn StrákaKrafts er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krafts og Birkir Már Birgisson, félagsmaður. Hægt er að óska eftir inngöngu hér.