- Þessi viðburður er liðinn.
StrákaKraftur – bogfimi

Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.
StrákaKraftur er stuðningshópur fyrir unga menn á aldrinum 18 – 45 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist annan hvern þriðjudag kl. 20 í húsakynnum Krafts eða á öðrum fyrirfram ákveðnum snilldar stöðum.
Tveir hittingar í maí
- 15.maí (miðvikudagur)– Bogfimi – Hittumst í Bogfimisetrinu kl. 20 og tökum nokkra leiki og fáum kennslu. Þú mátt melda þig á viðburðinn hér.
- 28.maí (þriðjudagur) – Keila – Hittum í Keiluhöllinni Egilshöll kl. 20.
Þú mátt melda þig á viðburðinn hér.
Umsjónarmenn StrákaKrafts er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krafts og Birkir Már Birgisson, félagsmaður.
Hér er hægt að óska eftir inngöngu í FB – hóp StrákaKrafts.