StrákaKraftur er stuðningshópur fyrir unga stráka á aldrinum 18 – 45 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist tvisvar í mánuði ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8, eða annarsstaðar.
Hópnum býðst að fá góða útrás á boxpúðunum í Mjölni á léttri boxæfingu, sem hefst kl 18.00 og er í klukkutíma.
Hittumst í Arena Gaming og spilum saman tölvuleiki og fáum okkur pizzu á eftir.
StrákaKraftur hittist í Skemmtigarðinum í Grafarvogi kl 18:00 og fer í Útrásarherbergið, þar sem er í boði að brjóta allt og bramla. Að því loknu gæða menn sér á gæða hamborgara.
Umsjón með hópnum hefur Róbert Jóhannsson, félagsmaður hjá Krafti.
Frekari upplýsingar um viðburði verða settar inn á FB – hóp StrákaKrafts og er hægt að óska eftir inngöngu í hópinn hér.
Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.