Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.
StrákaKraftur er stuðningshópur fyrir unga menn á aldrinum 18 – 45 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist annan hvern mánudag kl. 20 í húsakynnum krafts eða á öðrum fyrirfram ákveðnum snilldar stöðum
Þriðjudaginn, 26. febrúar klukkan 20:00 ætlar hópurinn að hittast á Natura Spa og skella sér í spa-ið í pottaspjall og slökun. Spa-ið og potturinn er StrákaKrafti að kostnaðarlausu. En þið verðið að melda ykkur á viðburðinn svo við vitum fjölda.
Dagskrá febrúar
Þri. 12.febrúar: Byrjendakvöld í Pílukastfélagi Reykjavíkur
Þri. 26.febrúar: Pottaspjalla í pottinum á Natura Spa
Umsjónarmaður StrákaKrafts er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krafts og Birkir Már Birgisson, félagsmaður. Hægt er að óska eftir inngöngu hér.