Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.
StrákaKraftur er stuðningshópur fyrir unga menn á aldrinum 18 – 45 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist annan hvern mánudag kl. 16 í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8.
Umsjón með hópnum hefur, Þorri Snæbjörnsson sálfræðingur félagsins.