Sumargrill Krafts verður haldið hátíðlegt í Guðmundarlundi þetta árið, fimmtudaginn 21.júní kl. 18-20.
Dagskráin verður frábær í einu orði sagt!
GRILLVAGN LE KOCK kemur á svæðið og sér öllum fyrir hamborgurum svo enginn fari svangur heim
ÍVAR OG MAGNÚS tónlistarmenn spila sumarslagara til að koma öllum í sólarskapið
SIRKUS ÍSLANDS mætir með sýningu og andlitsmálningu
Hoppukastalar á staðnum og stuttir reiðtúrar í lundinum fyrir krakkana 🙂
Hér má sjá leiðarlýsingu í Guðmundarlund:
Guðmundarlundur er rétt hjá hesthúsunum við Heimsenda í Kópavogi (Elliðavatns megin). Breiðholtsbraut er ekin í átt að Víðidal, beygt á ljósunum við Vatnsendahvarf (hjá nýju World Class og Bónus).
Keyrt er eftir Vantsendavegi þar til komið er í þriðja hringtorgið þá er tekin síðasta beygjan að Þingmannaleið.
Þar er skilti sem segir Heimsendi. Sú gata er keyrð þar til Heimsendi er á hægri hönd og þá á að vera skilti á vinstri hönd sem segir Guðmundarlundur. Keyrt upp á hæðina þar til komið er að skógræktarsvæði með grænu hliði, þar er Guðmundarlundur.
Hlökkum til að sjá ykkur í lundinum góða ♥