Verið velkomin að hoppa af Krafti!
Á miðvikudaginn í næstu viku þann 26.september ætlum við að skella okkur í snarskemmtilega trampolíngarðinn á Dalveginum, RUSH ICELAND. Mæting er þar í anddyrinu kl. 19:20. Viðburðurinn er félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Ungliðar í Krafti er hópur fyrir ungt fólk á aldrinum 18 – 29 ára sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Hópurinn hittist öllu jöfnu tvisvar í mánuði. Umsjón með hópnum hefur Berglind Þóra Haraldsdóttir.
Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn hér:
https://www.facebook.com/groups/316463201785345/