Ungliðahópurinn fer í Skypark trampólíngarðinn fimmtudaginn 28.sept. Mæting í Urðarhvarfi 14 Kópavogi kl. 20. Mælt er með að koma í þægilegum fötum / íþróttafötum. Áhugasamir þurfa að láta vita af mætingu með því að senda skilaboð á Kristján. Sjá tölvupóst.
Ungliðahópurinn er fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein á aldrinum 18-29 ára og aðstandendur. Hópurinn hittist tvisvar sinnum í mánuði og er samstarfsverkefni Krafts, Ljóssins og SKB.
Umsjónarmaður hópsins er Kristján Friðriksson, s: 866 2826 og tölvupóstur: kristjan.fridriks@gmail.com