Þann 27. júní hittust HK-ingar og freistuðu þess að hreppa Perlubikarinn en Perlubikarinn hlýtur það íþróttafélag eða sveitarfélag sem perlar flest armbönd til styrktar Krafti á fjórum klukkustundum. Alls mættu um 170 HK-ingar í Kórinn í Kópavogi og perluðu samtals 1.484 armbönd sem er glæsilegur árangur og flest armbönd sem perluð hafa verið í keppninni á höfuðborgarsvæðinu.
HK-ingarnir náðu þó ekki metinu af Sunnlendingum sem eru efstir í Perlubikarskeppninni sem stendur en þeir perluðu 2308 armbönd fyrr í mánuðinum – sjá grein.
Myndin er fengin frá Morgunblaðinu