Kraft-miklu hlaupurum fjölgar með hverri vikunum og erum við ykkur hlaupurum ofboðslega þakklát. Reykjavíkurmaraþonið fer fram laugardaginn 22. ágúst. Við hvetjum sem flest til að heita á hlauparana okkar og vekjum í leiðinni athygli á hvatningarstöð Krafts sem verður að Austurströnd 7. Við viljum benda á að allir skráðir hlauparar fá sér merkta Krafts boli og smá glaðning á expo-inu í Laugardalshöll dagana fyrir hlaup. Við hlökkum til að taka á móti hlaupurunum okkar með kraftmiklum fagnaðarlátum á hlaupadegi!
Hvatningarstöð Krafts verður á sínum stað og við hvetjum öll sem hafa tök á að koma og vera með okkur í þeirri miklu gleði og stemmingu sem myndast.
Við verðum með góða tónlist og léttar veitingar. Markmiðið er einfalt – að gefa Kraftshlaupurunum okkar aukinn kraft á leiðinni í mark!
08:15 – Maraþon og hálfmaraþon (keppnisflokkur)
08:45 – Maraþon og hálfmaraþon (almenn skráning)
09:30 – 10 km (keppnisflokkur)
10:15 – 10 km (almenn skráning)
12:00 – Skemmtiskokk
Við hvetjum ykkur til að mæta fyrir kl. 8:15 ef þið viljið taka á móti fyrstu hlaupurunum og skapa alvöru stemningu frá fyrstu mínútu. Starfsfólk og stjórn Krafts verða mætt snemma til að undirbúa hvatningarstöðina og taka á móti öllum sem vilja vera með.
Við minnum einnig á að götur verða lokaðar vegna maraþonsins, svo gott er að skipuleggja ferðina með smá fyrirvara.
Endilega klæðist einhverju appelsínugulu og takið með ykkur hristur, bjöllur eða annað sem hjálpar okkur að búa til almennileg fagnaðarlæti!
Vertu með okkur á hliðarlínunni! Taktu fjölskylduna, vini eða vinnufélagana með og komdu að hvetja Kraftshlauparana okkar áfram. Hvert klapp, hvert hróp og hvert bros skiptir máli og getur gefið hlaupurunum þann auka kraft sem þeir þurfa á að halda.