Nú hefur enn meira verið hert á sóttvarnaraðgerðum svo við höfum aðlagað dagskrá október að því sem og þjónustu. Því miður höfum við þurft að hætta við einhverja viðburði og aðlaga aðra. En við munum endurskoða dagskrána í hverri viku ef að tilmæli sóttvarnateymisins breytast.
Viðburðir og þjónusta Krafts í október
Hér að neðan má sjá þjónustu og viðburði Krafts í október og hvernig hlutum er þar háttað.
Að klífa brattann – Heiðmörk
Enn er stefnt á 24. október milli kl. 11:00 og 12:30. Meldaðu þig endilega í þessa göngu en þetta er auðveld leið á flestra færi þar sem lítið er um hækkun og er gengið á merktri gönguleið.
AðstandendaKraftur – Hvernig tekst ég á við kvíða?
Er á dagskrá núna 27. október. Sjá nánar hér.
Finndu þinn eldmóð – markþjálfunarnámskeið
Er nú á dagskrá 28. október. Sjá nánar hér.
FítonsKraftur – æfingar
Æfingar falla niður fyrstu tvær vikurnar í október en áætlað er að útiæfingar hefjist 20. október. Æfingarnar verða áfram á þriðjudögum og fimmtudögum milli 17:00 og 18:15 en auglýst verður á Facebook síðu hópsins hvar æfingarnar verða haldnar.
FítonsKraftur – Hjólaævintýri í Heiðmörk
Fellur niður um óákveðinn tíma
Kröftugar konur í Hörpu
Frestast til 9.desember 2020.
Sálfræðiþjónusta
Þorri sálfræðigur verður aðra hverja viku í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins og hina vikuna er boðið upp á símaviðtöl. Þegar viðtölin eru á staðnum eru þau örlítið styttri, svæðið sótthreinsað á milli skjólstæðinga, grímuskylda og tveggja metra reglan í gildi. Ef þú vilt bóka þér tíma hjá sálfræðingi Krafts þá bendum við á síma 866-9618 eða netfangið: salfraedingur@kraftur.org.
Markþjálfun
Stína markþjálfi heldur áfram að veita viðtöl í gegnum síma eða fjarskiptaforritinu Zoom eða Teams. Ef þú villt bóka tíma hjá markþjálfa getur þú gert það hér.
StelpuKraftur
- Bleikt boð – 5. október
- Netfundur
- Hittingur – 19. október
- Netfundur
Stuðningsfulltrúanámskeið
Verður haldið 26. október og 2. nóvember en að sjálfsögðu gætt að öllum sóttvarnarákvæðum. Sjá nánar hér.
Við í Krafti viljum í einu og öllu sína gott fordæmi og leggja okkar að mörkum til að sporna við útbreiðslu á Covid19. Hér má hala niður breyttri dagskrá.