VELKOMIN Á LÍFIÐ ER NÚNA FESTIVALIÐ 2024
Lífið er núna festivalið er einstakur vettvangur til að hitta jafningja, læra nýja hluti, fræðast, skemmta sér með öðrum og skapa frábærar minningar.
- HVENÆR: 28. september 2024
- HÚSIÐ OPNAR KL. 10:00: Skráningargögn eru afhent og boðið upp á létta morgunhressingu
- VINNUSTOFUR HEFJAST KL. 11:00: Vinnustofur verða yfir daginn frá kl. 11:00-16:40 með hléum
- SKEMMTUN HEFST KL. 19:00: Lífið er núna skemmtun hefst á VOX Club með fordrykk og standandi forréttum, kvöldverði og balli til miðnættis
- HVAR: Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík
- VERÐ: Staðfestingargjald: 3.500 kr. fyrir manninn (Ath. Allir sem skrá sig þurfa að vera skráðir félagsmenn):
Innifalið í verði: Ýmsar spennandi og skemmtilegar vinnustofur, aðgangur að Hilton Reykjavík Spa, hádegismatur, snarl, drykkir yfir daginn, kvöldverður (ekki drykkir aðrir en fordrykkur), stuðball og skemmtun og glaðningur. - SKRÁNINGARFRESTUR var til 16. september.
- Félagsmenn utan af landi fá ferðastyrk og gistingu sér að kostnaðarlausu. Sendið póst á kraftur@kraftur.org með upplýsingum.
FJÖLBREYTTAR VINNUSTOFUR YFIR DAGINN
Vinnustofurnar á Lífið er núna Festivalinu eru fjölbreyttar og reynum við að höfða til sem flestra. Fyrirlesararnir og leiðbeinendur dagsins eru sérfræðingar á sínum sviðum og gefa félagsmönnum tækifæri á að bæta við þekkingu sína og kunnáttu á vinnustofunum.
Við tökum að sjálfsögðu mið af því að fólk hefur kannski ekki úthald fyrir heilan dag af upplýsingum og fjöri á vinnustofunum og verða því tveir rólegir kostir ávallt í boði yfir daginn. Hægt verður að fara í góða slökun í Jógaherberginu á Hilton SPA þar sem Yoga Shala sér um kyrrðarstund og í félagsmiðstöð (Salur: K) verður hægt að fá sér kaffi, spjalla og njóta.