Kraftur fyrir enskumælandi

By 16. nóvember 2026Fréttir
Nýstofnaður hópur ,,Kraftur fyrir enskumælandi“ kom saman í fyrsta sinn á dögunum. Árlega greinast um 105 ungir einstaklingar á aldrinum 18–40 ára með krabbamein á Íslandi, þar á meðal einstaklingar sem tala ekki íslensku og geta því staðið frammi fyrir sérstökum áskorunum í kjölfar greiningar. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem þessi hópur getur hitt aðra sem standa í svipuðum sporum, speglað sig í þeim og gleymt sér í smá gleði á annars erfiðum tímum 🧡🧡🧡

Við minnum á að skráning í félagið fer í gegnum Abler og þar eru jafnframt allir stuðningshópar, viðburðir og fræðslur auglýstar.

Home