Kraftur er stuðningsfélag sem styður við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein á aldrinum 18-40 ára og aðstandendum.

Starfsemi Krafts felst í því:

  • Að veita andlegan og félagslegan stuðning við þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur.
  • Að gæta hagsmuna félagsmanna og standa vörð um réttindi þeirra gagnvart opinberum aðilum.
  • Að halda úti öflugu stuðningsneti þar sem áhersla er lögð á jafningjastuðning byggðan á persónlegri reynslu.
  • Að veita félagsmönnum sálfræðiþjónustu.
  • Að halda úti stuðningshópum
  • Að halda úti vettvangi fyrir félagsmenn til að stunda hreyfingu og útivist meðal jafningja
  • Að veita fjárhaglegan stuðning í gegnum Styrktarsjóð, Minningarsjóðinn og styrk til lyfjakaupa í samstarfi við Apótekarann.
  • Að halda úti fræðslu í formi fyrirlestra, fræðsluvefs, bóka og bæklinga.
  • Að halda reglulega viðburði á jafningjagrundvelli til að skapa góðar minningar og deila reynslu.

Skrifstofa félagsins er opin alla virka daga frá 10:00 til 16:00. Einnig er hægt að hafa samband í síma 866 9600 eða á kraftur@kraftur.org.

Skrifstofa félagsins er að Skógarhlíð 8 í húsnæði Krabbameinsfélags Íslands á jarðhæð hússins. Gengið er inn um aðalinngang á 1. hæð hússins.