Skip to main content

Bjóðum nýja stjórn velkomna til starfa

By 29. apríl 2025Fréttir

Þann 22. apríl síðastliðinn var aðalfundur félagsins haldinn í Skógarhlíð 8, í húsi Krabbameinsfélagsins. Að venju var farið yfir hefðbundin aðalfundarstörf og starfsár stjórnar gert upp, en viðburðarríkt ár er að baki á sviði fjáröflunar og þjónustu til félagsmanna.
Viktoría Jensdóttir, formaður fór yfir ársskýrslu stjórnar og Vilborg Anna Garðarsdóttir, fráfarandi gjaldkeri félagsins fór yfir ársreikning 2024.

Lágmarks mannaskipti voru í stjórn þetta árið þar sem meirihluti stjórnar á enn eftir eitt ár af sínum skipunartíma.

Í aðalstjórn félagsins voru kosnar Bára O´Brien og Brynhildur Arna Jónsdóttir til eins árs.

Halldóra Hálfdánardóttir, Jens Bjarnason og Vilborg Anna Garðarsdóttir hlutu kjör í varastjórn félagsins til eins árs.

Við þökkum fráfarandi stjórnarmeðlimum fyrir óeigingjarnt starf þeirra í þágu félagsins en það eru Elín Sandra Skúladóttir, Arnar Sveinn Geirsson og Róbert Jóhannsson.

Núverandi stjórn Krafts er því eftirfarandi:

  • Viktoría Jensdóttir – formaður
  • Hannes Rúnar Hannesson – aðalstjórn
  • Magnús Hafliðason – aðalstjórn
  • Brynhildur Arna Jónsdóttir – aðalstjórn
  • Bára O´Brien – aðalstjórn
  • Halldóra Hálfdánardóttir – varastjórn
  • Jens Bjarnason – varastjórn
  • Vilborg Anna Garðarsdóttir – varastjórn

Við hjá Krafti erum mjög þakklát og ánægð með þennan glæsilega hóp einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að vilja leggja sitt að mörkum og nýta sína reynslu félaginu til góða. Næsta starfsár verður því sannarlega kraftmikið og skemmtilegt með þetta flotta fólk innanborðs!

Close Menu