Skip to main content

Dagskrá Krafts í janúar

By 30. desember 2019mars 25th, 2024Fréttir

GLEÐILEGT ÁR!

Við hlökkum svo sannarlega til að eiga viðburðarríkt ár með ykkur en dagskrá janúar er nú komin í loftið og fullt af flottum hlutum að gerast.

Við erum að perla af Krafti á Akranesi 8. janúar, byrja með nýtt FítonsYoga námskeið, verðum með Samflot og förum saman á spunasýningu með Improv Iceland svo eitthvað sé nefnt. Sjá nánar í dagskránni hérna sem þú getur halað niður og smellt á viðburði sérstaklega til að fá nánari upplýsingar. Við minnum einng á aðra þjónustu sem Kraftur veitir endurgjaldlaust, markþjálfun, sálfræðiþjónustu og Stuðningsnetið.

Við vekjum líka athygli á dagskrá NorðanKrafts fyrir norðan og mælum við eindregið með því að þú kynnir þér það starf en hér geturðu líka séð dagskrána hjá NorðanKrafti.