Lífið er núna helgin er endurnærandi og uppbyggjandi helgi fyrir félagsmenn Krafts í samstarfi við KVAN þar sem þú færð tækifæri á að læra það hvernig þú getur tekist á við breyttar aðstæður í lífi þínu og kynnast öðrum í svipuðum sporum.
Ekki láta þessa helgi fram hjá þér fara – einungis pláss fyrir 20 manns – skráðu þig strax í dag en um er að ræða frábæra helgi sem kostar einungis 2500 krónur á mann með öllu.
Saman munum við:
- Læra hvernig við getum tekist á við breyttar aðstæður og nýta okkur styrkleika okkar til að byggja m.a. upp sjálfstraustið
- Stunda útivist og skemmtilega hreyfingu
- Stunda jóga
- Fræðast um nánd í veikindum
- Læra hvernig við getum rætt við börn um veikindi
- Læra hvernig við getum átt jákvæð samskipti
- Fá innsýn inn í það hvernig við getum nýtt okkur núvitund
- Fá fræðslu um hvernig við getum náð markmiðum okkar
Þetta verður dásamleg helgi í fallegu umhverfi við borgarmörkin þar sem við munum líka borða hollan og góðan mat, vera með kvöldvökur og njóta þess að hafa gaman saman. Helgin verður haldin í náttúruperlunni við Elliðavatn og gistum við tvær nætur á hótel Kríunesi
Allt – matur, fræðsla, skemmtun og gisting innifalin í staðfestingargjaldinu, 2500 krónum.
Hægt er að skrá sig hér – þetta er tækifæri sem gefst ekki á hverjum degi – Lífið er núna!