Vinir og ættingjar Kára Arnar standa fyrir Káramótinu í samstarfi við Golfklúbb Mosfellsbæjar. Mótið er minningarmót um Kára Örn Hinriksson sem lést síðastliðinn vetur. Mótið verður haldið á sunnudaginn 14.ágúst á Hlíðarvelli.
Leikið verður með texas scramble fyrirkomulagi þar sem tveir og tveir spila saman í liði. Ræst verður út af öllum teigum klukkan 16:00 og er mæting á svæðið ekki seinna en 15:30.
Mótið er haldið til styrktar Neyðarsjóðs Krafts.
Skráning og nánari upplýsingar inn á golf.is