Hlaupum af Krafti í Reykjavíkur maraþoninu 2026

By 20. apríl 2026Fréttir

Reykjavíkur maraþon Íslandsbanka fer að venju fram á menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst.

Ein stærsta fjáröflunarleið Krafts er áheitasöfnun í Reykjavíkurmaraþoninu, en félagið er alfarið fjármagnað með styrkjum og stuðningi einstaklinga og fyrirtækja í landinu.

Þátttaka og stuðningur allra sem hlaupa fyrir okkur og þeirra sem heita á þau er ómetanlegur. Við leggjum mikla áherslu á að hvetja og styðja hlauparana okkar – og lofum miklu stuði og stemningu á hvatningarstöð Krafts á hlaupadaginn sjálfan.

Allir sem eru skráðir til hlaups geta valið að safna áheitum fyrir Kraft á hlaupastyrkur.is – endilega kynnið ykkur málið.

Hjálpaðu okkur að hjálpa ungu fólki með krabbamein.