Aðalfundur Krafts var haldinn í gær, miðvkudaginn 30. apríl. Á fundinum voru Hlín Rafnsdóttur þökkum störf fyrir félagið í 14 ár en húnhefur verið félagi í Krafti frá fyrsta starfsári félagsins.
Kraftur þakkar Hlín ómetanlegt framlag hennar til félagsins og kveður hana með söknuði. Þótt Hlín sé ekki lengur í stjórn Krafts, hefur hún gefið okkur vilyrði um að taka þátt í öldungarráði Krafts og vera Krafti innan handar með ýmis málefni.
Á fundinum afhenti Halldóra Víðisdóttir, formaður félagsins, Hlín blómvönd frá stjórninni í þakklætisskyni.
Nánar verður fjallað um aðalfundinn síðar.