
Edda Björgvinsdóttir – leikkona, aðstandandi og verndari Lífið er núna armbandsins – verður með námskeiðið „Húmor og harmur“ fyrir félagsfólk Krafts og alla aðstandendur þriðjudaginn 3. mars kl. 17:30.
Áföll og sorg er eitthvað sem allar manneskjur upplifa á lífsleiðinni en bjargráðin eru sem betur fer ótal mörg og þeir einstaklingar sem nýta sér þær leiðir sem til eru ná gjarnan fyrri lífsgæðum og lífsorku eftir erfiða lífsreynslu.
Bjargráð eftir áföll eru mjög margvísleg og húmor getur verið afar öflugt verkfæri í bataferli (eða endurreisn) eftir að áfall/áföll hafa átt sér stað. Bjargráð eru nokkurs konar varnarkerfi líkamans og kannast margir við einkenni eins og doða, afneitun, sjálfsásökun og allskonar geðsveiflur.
Á þessu námskeiði verður farið í þá varnarhætti sem talið er að gagnist manneskjunni og sérstaklega verður hugað að fyrirbærinu Húmor, sem hefur reynst afbragðs bjargráð margra. Harmur að viðbættum tíma getur orðið húmor þó svo að áföll og sorg séu í sjálfu sér aldrei fyndin eða veki hlátur.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Viðbrögð líkamans við áföllum.
- Varnarhættir og bjargráð.
- Muninn á áfallastreitu og áfallastreituröskun.
- Sorg og sorgarferli.
- Gleði-verkfærin í gleðibankanum
Ávinningur þinn:
- Aukin færni í að greina eigið ástand í áfalli og/eða sorg
- Verkfæri í verkfæratöskuna til sjálfshjálpar og til að veita öðrum manneskjum stuðning í áfalli eða sorgarferli
- þekking á fjölmörgum tækjum og tólum til að öðlast fyrri lífskraft eftir áföll
- Innistæða í gleðibankanum
Fyrir hverja:
Öll þau sem vilja auka þekkingu sína á því hvernig manneskjan bregst við áföllum og sorg og einnig þau sem vilja veita öðrum styrk.
Öll þau sem vilja auka þekkingu sína á því hvernig manneskjan bregst við áföllum og sorg og einnig þau sem vilja veita öðrum styrk.
Það væri dásamlegt að sjá sem flesta og endilega komið með fólkið ykkar með ykkur sem gæti notið góðs af þessu frábæra námskeiði Eddu