Skip to main content

Hvar fæ ég nýja Lífið er núna armbandið?

Tryggðu þér nýja Lífið er núna armbandið en það er til sölu í takmarkaðan tíma og í takmörkuðu magni. Öll armböndin eru perluð af sjálfboðaliðum og rennur allur ágóði þeirra í starf Krafts. Armböndin eru fáanleg í þremur stærðum.

Þú getur tryggt þér nýja armbandið inn í vefverslun okkar en einnig er það til sölu á eftirfarandi stöðum til og með mánudagsins 6. júní.

Kraftur verður einnig með sölubás í Smáralindinni laugardaginn, 4. júní, milli klukkan 11 og 18 þar sem fólk getur komið og verslað armbönd.

Hver perla hefur sína sögu er yfirskrift fjáröflunar- og árvekniátaks Krafts sem stendur nú yfir og er armbandið selt samhliða átakinu. Armbandið er að sjálfsögðu með slagorðum Krafts „Lífið er núna“ en með því að bera armbandið sýnir fólk stuðning í verki.

Armbandið er svart fyrir utan eina perlu sem er appelsínugul. „Það er afar misjafnt hvaða merkingu fólk setur í armbandið og perlurnar en við vitum að allar perlur hafa sína sögu. Allir hafa sína sögu og finna sína merkingu. Appelsínugula perlan í armbandinu getur táknað Kraft, von, vernd, minningu, þig, einhvern sem er nærkominn þér, núið eða hvað sem er. En með því að bera armbandið sýnir fólk stuðning sem það jafnvel áttar sig ekki alveg á. En félagsmenn okkar finna ætíð fyrir meðbyr og stuðningi þegar þeir sjá aðra með armböndin,“ segir Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts.

Berum armbandið og sýnum stuðning í verki.