Skip to main content

Hver perla hefur sína sögu

Í dag hófst fjáröflunar- og árvekniátak Krafts.  Markmið átaksins er að selja ný Lífið er núna armbönd, fá fólk til að koma saman og sýna samstöðu með því að perla armbönd og sýna almenningi inn í reynsluheim félagsmanna Krafts og þeim áskorunum sem verða á vegi þeirra.

Um 70 ungir einstaklingar greinast á ári hverju og hefur það bæði áhrif á þau greindu sem og fjölskyldu og ástvini þeirra. Vitundarvakningin er hafin og stendur til 6. júní og ætlar Kraftur að selja armbönd á tímabilinu sem verða seld í takmörkuðu upplagi en öll armböndin eru perluð af sjálfboðaliðum.

„Hver perla hefur sína sögu er yfirskrift átaksins í ár og vísar til lífreynslu okkar félagsmanna og hvaða þýðingu „Lífið er núna“ armbandið hefur fyrir þau. Sem fyrr verður slagorð Krafts „Lífið er núna“ í hávegum haft og munum við hvetja fólk til að „sýna Kraft í verki“ með því að perla með okkur armbönd eða kaupa þau. En með því að bera armbandið sýnir fólk stuðning sem það jafnvel áttar sig ekki alveg á en félagsmenn okkar finna ætíð fyrir meðbyr og stuðningi þegar þeir sjá aðra með armböndin,“ segir Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts.

Sláum Íslandsmet í perlun

Kraftur stendur fyrir risaperluviðburði í Hörpu þann 22. maí þar sem markmiðið er að slá Íslandsmet sem var sett fyrir fjórum árum í perlun armbanda. Fólk getur komið og perlað í nokkrar mínútur og allt upp í fjórar klukkustundar, allt eftir þeirra hentisemi en viðburðurinn verður milli klukkan 13:00 og 17:00. Skemmtidagskrá verður á svæðinu fyrir alla fjölskylduna en nánari dagskrá verður auglýst síðar á Facebook viðburðinum. Íslandsmetið stendur nú í 4233 armböndum. Kraftur hvetur því alla landsmenn til að koma og leggja hönd á perlu. Svipaður viðburður verður svo einnig á Akureyri, 28. maí en nánar má sjá um hann hér.

Armböndin eru komin í forsölu í vefverslun Krafts á www.lifidernuna.is og verða einnig í völdum verslunum Krónunnar sem og vefverslun Krónunnar eftir stóra perluviðburðinn. Armböndin kosta 2.900 krónur og rennur allur ágóði af þeim í starfsemi Krafts og í að styðja þar með við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.