Kæru félagsmenn
Þar sem upp hefur komið sú staða að Svanhildur Anna Magnúsdóttir, sem kjörin var formaður Krafts í vor, hefur sagt sig frá formennsku félagsins þá verður haldin auka aðalfundur þann 11.september. Dagskrá fundarins verður kjör nýs formanns. Formaður Krafts er kjörinn til tveggja ára í senn.
Fundur verður haldinn í Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, 1.hæð. Fundurinn hefst kl. 20.
Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að gefa kost á sér í gefandi starf, í góðum félagsskap og fyrir gott málefni. Framboð óakstast tilkynnt til formanns fyrir miðvikudaginn 11.september. Frekari upplýsingar gefur Hulda í gegnum netfangið formadur@kraftur.org og í síma 847-8352.