Kraftur leitar að starfsmanni, í verktakavinnu til að hafa umsjón með NorðanKrafti, stuðningshópi fyrir unga krabbameinsgreinda (45 ára og yngri). NorðanKraftur er staðsettur á Akureyri og þjónustar félagsmenn Krafts á því svæði og nágrenni. Hópurinn er samstarfsverkefni Krafts og KAON (Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis).
Helstu verkefni starfsmanns eru:
- Umsjón með starfsemi NorðanKrafts í samvinnu við Kraft og KAON
- Koma að þróun á starfsemi NorðanKrafts með það að leiðarljósi að koma á móts við þarfir ungra krabbameinsgreindra og aðstandenda.
- Umsjón með skipulagningu á viðburðum NorðanKrafts
- Almennri upplýsingagjöf og þjónustu við félagsmenn á Akureyri og nágrenni.
- Annast önnur tilfallandi verkefni fyrir félagið á Akureyri
Við leitum að starfsmanni með:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góða samstarfshæfileika
- Kostur er að viðkomandi haf reynslu af málefninu
- Áhuga á málefnum ungra krabbameinsgreindra og aðstandenda
- Ríka þjónustulund og samkennd
- Góða tölvukunnáttu og reynslu í notkun samfélagsmiðla
- Skilyrði er að viðkomandi sé reyklaus
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Krafts í síma 866-9600.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist til hulda@kraftur.org.
Umsóknarfrestur er til og með 12.október 2020.
Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk á aldrinum 18-45 ára sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Kraftur veitir félagsmönnum sínum andlegan, félagslegan og fjárhagslegan stuðning, miðlar upplýsingum um réttindi sjúklinga og aðstoðar þá við að komast út í lífið aftur eftir veikindin.