
Í tilefni af Mottumars heldur Kraftur Kröftuga strákastund í Golfhöllinni út á Granda, fimmtudagskvöldið 26. mars frá 19-21.
Bolli Már Bjarnason, útvarpsmaður, uppistandari og umsjónarmaður Strákakrafts og Matti Ósvald, markþjálfi hjá Ljósinu, munu stýra kvöldinu og nokkrir kraftmiklir menn deila reynslu sinni af því að greinast með krabbamein eða því að vera aðstandandi og hvert þeir hafa sótt sinn styrk.
„Við strákarnir erum svo vanir að fara í gegnum erfiða tíma á hnefanum og tölum ekki um hlutina. Það hins vegar kemur bara niður á okkur og fólkinu í kringum okkur. Því er svo nauðsynlegt að hitta aðra í svipuðum sporum sem að skilja mann og því er mikilvægt að standa með sínum og mæta á þessa mögnuðu stund“.
Kraftur mælir með því að allir karlmenn standi með sínum og mæti, taki með sér vini, vandamenn, syni, feður, bræður, afa, eða vinnufélaga því flestir geta speglað sig í einhverjum af þeim reynsluboltum sem munu stíga fram og segja frá sinni reynslu.
Skráning hér https://forms.office.com/e/NwPDPfwLaf