
Sýnum Kraft í verki – berum armbandið er yfirskrift vitundarvakningar Krafts 2026. Uppleggið var að veita fólki innsýn í raunir ungs fólks með krabbamein, vekja athygli á mikilvægi Krafts og fjölga stuðningsríkum úlnliðum. Armbandið er oftar en ekki fyrsti snertiflötur nýgreindra við Kraft og þrátt fyrir smæð þá eru áhrif þess sannarlega stór.
„Þarna er maður sem afgreiðir mig og hann er með armband og ég fattaði hvað það gerði mikið fyrir mig, án nokkurra orða gat hann sagt svo mikið við mig, hann þekkti mig ekki en þarna var samstaða”
Okkur fannst liggja beinast við að upplýsa framtíðarkaupendur um mikilvægi þess að bera/kaupa armbandið í gegnum sögur ungs fólks með krabbamein.
,,Þetta armband er lítið tákn sem hefur samt stóra merkingu um gleði og jákvæðni. Þrátt fyrir mótlæti þá er armbandið ákall til að halda áfram. Einn dag í einu, eitt skref í einu og aldrei gefast upp”
Lífið er núna armbandið er ekki bara armband heldur samstöðutákn og valdefling. Það er stuðningsyfirlýsing án orða og mikil og falleg vinna á bakvið hvert einasta band. Mörg þúsund Íslendingar hafa nú bæst í hóp þeirra sem sýna stuðning og samstöðu í verki og skarta fallegasta armbandinu. Á sama tíma fögnum við fjárhagslegum ávinningi af vitundarvakningunni sem tryggir félagsfólki okkar áframhaldandi þjónustu, fræðslu og stuðningi.
Ástar þakkir til allra sem lögðu hönd á plóg, perlarar, hnýtarar, auglýsingabirtingar aðilar, kaupendur og síðast en ekki síst Sara, Logi og Sigrún