Nýr menntasjóður fyrir félagsfólk Krafts

By 15. maí 2026Fréttir

Það er ánægjulegt að greina frá því að Kraftur stuðningsfélag hefur sett á laggirnar sérstakan menntasjóð fyrir félagsfólk. Menntasjóðnum er ætlað að styrkja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein til náms. Með menntasjóðnum vill félagið hjálpa þessum viðkvæma hóp að fóta sig á ný í kjölfar veikinda og á að virka sem hvatning til þess að hefja nám og öðlast færni sem styður við þátttöku í samfélaginu.

Félagsfólk Krafts sem hefur greinst með krabbamein, getur sótt um styrk úr Menntasjóði hér. Menntasjóður – Kraftur

Samhliða nýjum sjóði er félagið nú í fallegu samstarfi við Opna Háskólann sem býður félagsfólki 20% afslátt af fjölbreyttum námskeiðum sem kunna að nýtast því. Hér má sjá yfirlit yfir námskeið Opna Háskólans. Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík

Opni háskólinn í HR býður upp á námskeið og fræðslu fyrir fólk í atvinnulífinu. Að auki býður Opni háskólinn upp á sérhæfðar fræðslulausnir fyrir þau fyrirtæki sem eftir því óska, stærri og smærri.