Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fékk nýverið gjöf frá Tólfunni og Krafti þ.e. poka með armböndum Krafts í fánalitunum. Þeir bera nú stoltir armböndin og hafa vakið athygli á málstaðnum okkar.
Armböndin okkar sem eru í fánalitunum sýna samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM en þau eru alfarið seld til styrktar Krafti og starfsemi okkar. Hægt er að panta þau í vefverslun okkar, eða versla þau hjá Útilíf, Errea, Jóa Útherja, Ölveri eða í Kraftstjaldinu í Hljómskálagarðinum þegar leikir Íslands eru.
Kíktu á þessar tvær fréttir:
- Frétt á Vísi – Tólfan gaf strákunum armböndin „Þið hafið látið okkar villtustu drauma rætast“
- Frétta á mbl.is – Rúrik vekur athygli á armböndum Krafts
Fengum myndina að láni hjá mbl.is