Viðburðir í febrúar og mars

By 16. febrúar 2026Fréttir

Viðburðir í febrúar og mars 🧡

Stelpukraftur 4. feb: Matur og píla á Oche kl. 18
Miðvikudaginn 4. febrúar mun Stelpukraftur hittast í pílu á Oche í Kringlunni og gæða sér á djúsí veitingum.

Ofurkraftur 10. feb: Flot með Flothettu kl. 20 
Við ætlum að njóta og fljóta með Flothettu. Dásamleg stund þar sem djúpslökun, vellíðan og endurnæring er í fyrirrúmi.

Fjölskyldukraftur 15. febVává barnaklúbbur kl. 10
Notalegur morgunn á Vává barnaklúbb þar sem börn á aldrinum 0-8 ára geta gleymt sér saman í leik <3

Strákakraftur 25. febImprov Ísland kl. 20 
Strákakraftur skellir sér á Improv Ísland í Þjóðleikhúskjallaranum þar sem hláturtaugarnar verða kitlaðar!

Stelpukraftur 26. febLotus þjálfun/tónheilun kl. 13
Miðvikudaginn 26. febrúar kl. 13 fer Stelpukraftur í tónheilun með Lotus þjálfun. Tónheilun með söngskálum er tegund af orkumeðferð sem notar hljóðbylgjur og titring til að stuðla að slökun, jafnvægi og vellíðan – bæði líkamlega og andlega. Sjáumst þar.

Aðstandendakraftur 3. marsHúmor og harmur með Eddu Björgvins (öll velkomin, félagsfólk og aðstandendur)

Ofurkraftur 10. mars: Við ætlum að njóta og fljóta með Flothettu. Dásamleg stund þar sem djúpslökun, vellíðan og endurnæring er í fyrirrúmi.

Stelpukraftur 12. mars: Förðunarnámskeið hjá Makeup studio Hörpu Kára

Fjölskyldukraftur 24. mars: Páskabingó

Strákakraftur 26. mars: Kröftug strákastund