Ætlum að hittast klukkan 11:00 á bílastæðinu við Heiðmerkurveg
Leiðin er greiðfær með malarstíg alla leið. Frábær ganga sem er smá krefjandi þar sem ágætis halli er á Vífilstaðarhlíðinni en hentar flest öllum sem eru vel skóaðir
Kraftsfélagar, fjölskyldur, börn og vinir þeirra eru hjartanlega velkomin.
Endilega meldið ykkur á viðburðinn hér.
Göngurnar eru fyrir alla þá sem hafa áhuga á nota göngur til heilsueflingar, til að njóta íslenskrar náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja.
Við munum taka mið af veðri og snjóþunga og allar breytingar á gönguleið verða tilkynntar hér á viðburðinum.
Atli Már þjálfari FítonsKrafts mun leiða gönguna. Síminn hans er: 663-2252
Þú getur fylgst með okkur á Facebook og beðið um inngöngu í hópinn hér