Næsti fyrirlestur í fyrirlestraröð Krafts, Ungt fólk og krabbamein, verður haldinn þriðjudaginn 19. febrúar n.k. kl 17.15 í húsakynnum Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, Reykjavík.
Að þessu sinni beinum við sjónum okkar að aðstandendum krabbameinsveikra og fáum til liðs við okkur þrjá einstaklinga sem lýsa reynslu sinni af því að ganga í gegnum þá lífsreynslu að eiga ástvin með krabbamein. Reynsluheimur aðstandenda getur verið ólíkur þar sem þeir spila ólík hlutverk í lífi viðkomandi.
Við munum heyra frá Gísla Níls Einarssyni sem gekk með systur sinni í gegnum erfitt krabbameinsferli, Arnari Sveini Geirssyni sem missti móður sína ungur að aldri og Tinnu Lind sem gekk með manninum sínum í gegnum þessi veikindi.