
- Þessi viðburður er liðinn.
Fyrstu skrefin í ræktinni – FítonsKraftur námskeið
26. janúar @ 17:30 - 18:30
An event every week that begins at 17:30 on Þriðjudagur and Fimmtudagur, repeating until 2. mars 2023

Fyrstu skrefin í ræktinni – námskeið í tækjasal
Námskeiðið er ætlað til að koma þér af stað í ræktinni hvort sem þú ert byrjandi eða sért að koma þér aftur af stað eftir pásu. Námskeiðið hentar öllum, krabbameinsgreindum og aðstandendum, byrjendum sem lengra komnum. Áhersla er lögð á vöðvauppbyggingu, þol og líkamsbeitingu.
Námskeiðið er í formi hópeinkaþjálfunar í tækjasal.
Iðkendur svara spurningalista við upphaf námskeiðs og út frá því er útbúin einstaklingsmiðuð æfingaáætlun.
Markmið námskeiðsins eru:
- Koma iðkendum af stað í líkamsrækt
- Iðkendur nái tökum á helstu æfingum sem tengjast líkamsrækt og hreysti.
- Iðkendur upplifa vellíðan við að hreyfa sig.
Staðsetning og tími:
Heilsuklasinn Bíldshöfði 9
Þriðjudagar og fimmtudagar kl.17:30-18:30
6 vikna námskeið
frá 24. janúar til 2. mars.
*Ath! að námskeiðið er ekki ætlað þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í endurhæfingu, sjá Ljósið enduhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda.