Við elskum að fara út fyrir þægindarammann og prófa nýja hluti og í þetta skiptið ætlum við að fara í Valshamar og klifra.
Gústi og Benjamín frá Klifurhúsinu ætla að taka okkur í klifurkennslu og kenna okkur réttur taktana og verða með allan búnað á staðnum. Gústi er einnig félagsmaður í Krafti og hefur notað göngur og klifur sér til endurhæfingar og hefur sýnt fram að stóma eða annað þarf ekki að vera fólki til fyrirstöðu til að klífa fjöll.
Eftir klifrið ætlum við að grilla í góða veðrinu og njóta.
Ætlum við að hittast hjá Heilsuborg kl. 17, Bíldshöfða 9 upp á Höfða til að sameinast í bíla og leggjum af stað þaðan.
Þessi viðburður er öllum félagsmönnum Krafts opinn, krabbameinsgreindum og aðstandendum, og að kostnaðarlausu og þarftu ekki að vera meðlimur í FítonsKrafti til að taka þátt 🙂
Vinsamlegast skráðu þig hér.
Þjálfari FítonsKrafts er Atli Már Sveinsson, íþróttafræðingur sem hefur sérhæft sig í þjálfun krabbameinsgreindra.
Hægt er að óska eftir inngöngu í FítonsKraft hér: https://www.facebook.com/groups/fitonskraftur/