- Þessi viðburður er liðinn.
Lífið er núna helgi í Fljótshlíð

Endurnærandi helgi meðal jafningja
Ekki láta þessa helgi fram hjá þér fara – um er að ræða endurnærandi og ævintýralega helgi meðal jafningja dagana 29. apríl til 1. maí þar sem gist verður á Gistiheimilinu Húsið. Ótrúlega fallegt og notalegt hótel í Fljótshlíðinni í unaðslegri náttúru Suðurlansundirlendis.
DAGSKRÁ
- Paellugerð
- Jeppaævintýri með Midgard
- Vinnustofur með Sössu tengdar sjálfsvinnu og sjálfstyrkingu
- Pubquiz
- Slaka á og njóta
Hér má sjá alla dagskrá helgarinnar
*Takmörkuð pláss í boði – skráning nauðsynleg – staðfestingargjald 3.500 kr.
Helgin er bæði hugsuð fyrir krabbameinsgreinda sem og aðstandendur. Einungis er pláss fyrir 20 manns svo um að gera að tryggja sér sæti sem fyrst
Lífið er núna helgin er endurnærandi helgi fyrir félagsmenn Krafts þar sem við njótum þess að vera saman í fallegu umhverfi og byggjum okkur upp líkamlega og andlega.
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Huldu í gegnum hulda@kraftur.org eða í síma 866-9600