FítonsKraftur býður upp á samflot á nýju ári í Sundlauginni Boðaþingi í Kópavogi þann 8. janúar frá frá kl. 20 – 21:30. Yndislegt að taka meðvitaða ákvörðun að fljóta inn í nýja árið, samþykkja allt sem kemur, sleppa tökunum af ótta og streitu.
Flotbúnaður verður á staðnum svo þú þarft bara að koma með sundfatnað. Lovísa Kristín jógakennari og flotforingi mun leiða flotið en hún er með margra ára reynslu í því. Slakandi tónlist og ilmolía verður í loftinu til að þú náir enn betri slökun en í flotinu nær hryggjarsúlan fullkominni slökun í algjöru þyngdarleysi.
Viltu fljóta með?
Þá þarftu að skrá þig hér. Takmarkað pláss er í lauginni svo við verðum að vita fjölda þeirra sem mæta. Viðburðurinn er félagsmönnum okkar að kostnaðarlausu.
Hlökkum til að fljóta með ykkur ♥