StrákaKraftur er stuðningshópur fyrir unga karlmenn á aldrinum 18 – 4o ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist eitt miðvikudagskvöld í mánuði ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8 eða annarsstaðar. Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir miklu máli að vita hvert maður getur leitað og finna að maður standi ekki einn í baráttunni.
Þetta er viðburður þar sem við bjóðum þér að taka með vin.
Skráning er nauðsynleg hér
Tökum hressir saman á móti haustinu og ræðum veturinn framundan!
Frekari upplýsingar um viðburði verða settar inn á Facebook hóp StrákaKrafts og er hægt að óska eftir inngöngu í hópinn hér
Umsjón með hópnum hefur Róbert Jóhannsson, stjórnarmeðlimur og félagsmaður hjá Krafti. Hann hefur sjálfur reynslu af því að hafa greinst ungur með krabbamein. Hægt er að hafa samband við hann í gegnum ritari@kraftur.org
Dagskrá fyrir október og nóvember verður kynnt fljótlega