Aðalfundur Krafts 2026

By 27. apríl 2026Fréttir

Aðalfundur Krafts fór fram í húsakynnum Krabbameinsfélagsins miðvikudaginn 22. apríl. Farið var yfir starfsemina á liðnu ári, ársskýrsla var tekin til samþykktar og ný stjórn var mynduð.

Við þökkum fráfarandi stjórnarmeðlimum fyrir óeigingjarnt starf síðustu árin. Takk fyrir framlagið; Viktoría Jensdóttir, Hannes Rúnar Hannesson, Jens Bjarnarson og Magnús Hafliðason.

Við bjóðum þau Erik Chaillot, Helgu Láru Haarde, Aðalbjörgu Guðmundsdóttur og Emblu Rún Pétursdóttur velkomin í stjórn Krafts. Helga Lára var kjörin formaður félagsins til tveggja ára og ásamt henni skipa þau Erik Chaillot, Halldóra Hálfdánardóttir, Bára O’Brien, Brynhildur Arna Jónsdóttir aðalstjórn félagsins. Þær Embla Rún Pétursdóttir, Aðalbjörg Guðmundsdóttir og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir sitja í varastjórn félagsins.

Ársskýrsluna má finna hér.