GLEÐILEGT ÁR!
Við hlökkum svo sannarlega til að eiga viðburðarríkt ár með ykkur en dagskrá janúar er nú komin í loftið og fullt af flottum hlutum að gerast.
Við erum að perla af Krafti á Akranesi 8. janúar, byrja með nýtt FítonsYoga námskeið, verðum með Samflot og förum saman á spunasýningu með Improv Iceland svo eitthvað sé nefnt. Sjá nánar í dagskránni hérna sem þú getur halað niður og smellt á viðburði sérstaklega til að fá nánari upplýsingar. Við minnum einng á aðra þjónustu sem Kraftur veitir endurgjaldlaust, markþjálfun, sálfræðiþjónustu og Stuðningsnetið.