Skip to main content

Fokk ég er með krabbamein – ný bók

By 4. febrúar 2019september 26th, 2023Fréttir

Kraftur hefur endurútgefið bókina LífsKraftur í algjörlega nýrri mynd. Allir sem greinast með krabbamein á aldrinum 18-45 ára og fjölmargir fleiri fá bókina afhenta sér að kostnaðarlausu en hún liggur einnig frammi á öllum spítölum landsins.

„Bókin kom fyrst út árið 2003 og er þetta er fimmta útgáfan af LífsKrafti en við tókum mið af gömlu bókinni en ákváðum að endurskrifa hana með það í huga að hún höfðaði betur til ungs fólks. Hún er eftir sem áður handbók um flest sem viðkemur krabbameini og þær hugleiðingar sem fólk hefur um krabbamein,” segir Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Krafts. „Undirtitill bókarinnar er einmitt Fokk ég er með krabbamein sem er jú oftast það fyrsta sem kemur upp í kollinn á fólki þegar það greinist með krabbamein“, segir Hulda enn fremur.

LífsKraftur inniheldur hagnýtar upplýsingar fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur þeirra og vini. Tilgangur þessarar útgáfu er að safna saman á einn stað upplýsingum, fræðsluefni og bjargráðum sem koma að gagni fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur.

Kraftur fagnar á þessu ári 20 ára afmæli sínu og því var brugðið á það ráð að gefa LífsKraft út í nýrri og nútímalegri mynd. Velferðarráðuneytið styrkti Kraft við útgáfu bókarinnar en fjölmargir aðrir lögðu félaginu lið með skrifum og ráðgjöf og færir Kraftur þeim öllum sínar bestu þakkir.

Útgáfu bókarinnar verður fagnað á Alþjóðadegi krabbameins, mánudaginn 4. febrúar kl. 17:00 í Kaffi Flóru í Grasagarðinum í Laugardal.

Þú getur lesið bókina hér á netinu eða fengið hana senda heim til þín og greiða þá bara sendingarkostnaðinn. Hér er hægt að fá bókina senda heim