Skip to main content

Kröftug kvennastund í Iðnó

Í tilefni af bleikum október stendur Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur fyrir viðburðinum; Kröftug kvennastund í Iðnó, þriðjudaginn 11. október milli klukkan 17:00 og 19:30. Við fáum kraftmiklar konur til að deila reynslu sinni, hvert þær sækja sinn styrk og hvernig þær hafa tekist á við áskoranir hvort sem er í starfi eða persónulega lífinu.

Fram koma:

  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla- iðnaðar og nýsköpunarráðherra. Áslaug missti móður sína ung að aldri úr krabbameini en báðir foreldar hennar greindust með krabbamein þegar hún var í kringum tvítugt. Hún hefur rætt opinskátt um krabbameinið og móðurmissinn.
  • Hulda Bjarnadóttir forseti Golfsambands Íslands, fjölmiðlakona og fyrrum framkvæmdastjóri Krafts sem starfar í dag við uppbyggingu á fyrirtækjamenningu hjá Marel. Hulda greindist með BRCA genið og lét fjarlægja brjóstin og eggjastokkana í kjölfarið af greiningunni.
  • Bára O’Brien Ragnhildardóttir verkefnastjóri greindist nýverið með brjóstakrabbamein einungis 34 ára gömul. Hún hefur talað opinskátt um baráttu sína við brjóstakrabbameinið á samfélagsmiðlum á sinn einlæga og fallega máta.
  • Tinna Ósk Grímarsdóttir framkvæmdastjóri greindist með fjórða stigs ristilkrabbamein 34 ára gömul. Tinna hefur verið dugleg að deila sinni lífsreynslu og sögu á samfélagsmiðlun, því hvernig það er að fá stóma og lífinu með krabbameininu.
    Snjólaug Lúðvíksdóttir uppistandari mun einnig stíga á stokk.

Í lokinn verður boðið upp á umræður þar sem konur geta borið fram fyrirspurnir fyrir þessar kröftugu konur sem halda erindi á kvennastundinni.

Um fundarstjórn sjá Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir, baráttukonur í réttindabaráttu hinsegin fólks sem hafa m.a. halda úti fræðslu á samfélagsmiðlum Hinsegin leikanna.

Þetta verður söguleg og mögnuð kvennastund en ókeypis er á viðburðinn en takmarkað sætapláss er í boði og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér sæti. Við biðjum þig að skrá þig hér.

Nánari upplýsingar veitir Inga Bryndís Árnadóttir, fræðslu- og hagsmunafulltrúi Krafts, ingabryndis@kraftur.org, sími 866-9621