Skip to main content

Lífið er núna tónleikar um land allt

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur stendur nú fyrir árvekni- og fjáröflunarátaki. Liður í átakinu er að fara hringinn í kringum landið og vera með Lífið er núna tónleika.

„Við ákváðum að taka rúntinn hringinn í kringum landið með tónleika en tilgangurinn með því er að kynna starfsemi okkar og minna fólk á að njóta augnabliksins. Fólk sem greinist með krabbamein þarf að sækja oft meðferð til Reykjavíkur þó það sé búsett úti á landi og því er gott að vita hvert þau geta leitað þegar þau eru í bænum,“ segir Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Krafts.

Tónleikaferðalagið átti að hefjast 30. janúar en veðurguðirnir eru augljóslega jafnhrifnir af sterka appelsínugula litnum og Kraftur sjálfur skartar svo því þarf að hætta við þá tónleika. „Við brunum því bara beint á Höfn á morgun og sláum þar til fyrstu Lífið er núna tónleikaveislunnar. Svo höldum við áfram hringinn en við endum veisluna aftur í Reykjavík á baráttudegi gegn krabbameinum 4. febrúar með tónleikum í Iðnó,“ segir Stefán enn fremur. Hægt verður að kaupa miða við innganginn á alla tónleikana sem eru á landsbyggðinni og kostar 2.000 kr. inn. En hægt er að tryggja sér miða á tónleikana á Iðnó á Tix.is eða kaupa við innganginn en miðaverð á þá er 3.500 kr. Að sjálfsögðu verður einnig hægt að kaupa Lífið er núna húfu Krafts á svæðinu.

Tónleikadagskráin