Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Lífið er núna styrktartónleikaröð Krafts

2. febrúar 2023 @ 20:00 - 22:00

Kraftur heldur í tónleikaferðalag hringinn í kring um landið!
30. jan – 4. feb

Tilgangur ferðalagsins er að minna fólk á að Lífið er núna og muna að njóta líðandi stundar en einnig til að minna fólk á starfsemi Krafts og þá þjónustu sem félagið býður sínum félagsmönnum.
Allur ágóði af miðasölu og söluvarnings rennur til Krafts. Á öllum tónleikunum verður hægt að kaupa Lífið er núna húfuna.

Ferðalagið hefst 30. janúar í Vík í Mýrdal og lýkur með stórtónleikum í Iðnó laugardaginn 4. febrúar, alþjóðlegum baráttudegi gegn krabbameini.

Ferðalagið er sem hér segir:

30. janúar / Smiðjan Brugghús / Vík í Mýrdal
Fram kemur: Stebbi Jak og hljómsveit
Miðaverð: 2.000 kr (selt í hurð)

31. janúar / Hafið / Höfn í hornafirði
Fram kemur: Stebbi Jak og hljómsveit
Miðaverð: 2.000 kr (selt í hurð)

1. febrúar / Egilsbúð / Neskaupstað
Fram koma: Stebbi Jak og hljómsveit, Ína Berglind og Coney Island Babies
Miðaverð: 2.000 kr (selt í hurð)

2. febrúar / Græni Hatturinn / Akureyri 
Fram koma: Stebbi Jak og hljómsveit, Lost, Angurværð og Dopamine Machine
Miðaverð: 2.000 kr (selt í hurð)

3. febrúar / Hotel Radisson Parkinn / Reykjanesbæ
Fram kemur: Stebbi Jak og hljómsveit
Miðaverð: 2.000 kr (selt í hurð)

 

Laugardaginn 4. febrúar verða haldnir stórglæsilegir styrktartónleikar Krafts í Iðnó. Fram kemur einvalið lið tónlistarfólks þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

 

Fram koma:
19:00 Anya Shaddock
19:25 Elín Hall
19:50 Sycamore Tree
20:20 Langi seli og skuggarnir
20:45 Unnsteinn og Hermigervill
21:15 Bríet
21:45 Stebbi Jak
22:10 Grunge rokkmessa

 

Miðaverð: 3.500 kr
Miðasala fer fram á tix.is, en einnig verður hægt að kaupa miða í hurð. Einnig er tekið við frjálsum framlögum.

Upplýsingar

Dagsetning:
2. febrúar 2023
Tímasetning:
20:00 - 22:00
Series:

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website