AðstandendaKraftur er stuðningshópur fyrir aðstandendur sem eiga ástvin sem greinst hefur með krabbamein. AðstandendaKraftur var stofnaður af aðstandendum fyrir aðstandendur sem stendur fyrir ýmsum viðburðum í vetur.
DAGSKRÁ VOR 2024:
11. JANÚAR KL. 17:00 – AÐSTANDANDI; SETTU SÚREFNISGRÍMUNA FYRST Á ÞIG
- Anna Sigurðardóttir sálfræðingur frá Samkennd heilsusetur fer yfir þá þætti sem mikilvægt er að aðstandendur hafi í huga til að koma í veg fyrir að brenna ekki út heldur haldi heilsu á meðan á umönnun aðstandandans stendur
25. JANÚAR KL. 17:00 – KÓSÝKRAFTUR – SPJALL
- Guðlaug Ragnarsdóttir náms- og starfsráðgjafi, umsjónarkona hópsins heldur utan um spjallið.
8. FEBRÚAR KL. 17:00 – HÚMOR Í ERFIÐUM AÐSTÆÐUM
- Edda Björgvins kemur og spjallar við hópinn um mikilvægi þess að halda í húmorinn.
22. FEBRÚAR KL. 17:00 – AÐ STANDA Á TÍMAMÓTUM EFTIR VEIKINDI
- Guðlaug Ragnarsdóttir náms- og starfsráðgjafi, umsjónarkona fer yfir hvað ber að hafa í huga hvað varðar náms- og starfsmöguleika þegar fólk stendur á tímamótum eftir krefjandi tímabil.
7. MARS KL. 17:00 – BÖRN OG KRABBAMEIN
- Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu og starfamaður Ráðgjafaþjónustunnar, deilir reynslu sinni af því að nálast umræðuna um krabbamein við börn.
21. MARS KL. 17:00 – KÓSÝKRAFTUR – SPJALL
- Guðlaug Ragnarsdóttir náms- og starfsráðgjafi, umsjónarkona hópsins heldur utan um spjallið.
Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki, foreldri, systkini eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum.
Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn á Facebook hér.
Umsjónarmaður hópsins er Guðlaug Ragnarsdóttir náms- og starfsráðgjafi sem hefur einnig reynslu af því sjálf að hafa greinst með krabbamein. Guðlaug býður einnig upp á þjónustu sem náms- og starfsráðgjafi. Nánar um það hér.